Flogið á Melunum 30 Janúar 2010

Mjög fallegt veður var á Melgerðismelum í dag og frostið um -9 gráður og þurfti að hella heitu vatni yfir lásin á hliðinu til að þýða hann. Guðmundur og Tómas voru mættir um hádegi með tvo Yak 54 með rafmagns mótorum. Kíktum við inn í Hyrnu, og þar var mjög hlýtt og notalegt. Á meðan batterí-in hlóðust út í bíl fengum við okkur kaffi og brauð. Eitt 10mín flug var tekið út á braut áður enn við flúðum kuldan og fórum heim.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Flogið á Melunum 30 Janúar 2010

Nýir menn í stjórn

Aðalfundur FMFA var haldinn í VMA á fimmtudag. Tólf áhugasamir félagsmenn létu sjá sig og spjölluðu um ýmsa hluti er varða félagið fram eftir kvöldi.

Tveir nýir menn voru kosnir í stjórnina, þeir Jón Guðmundur Stefánsson og Tómas Jónsson,  en Kristinn Ingi Pétursson og Þröstur Gylfason gáfu ekki kost á sér áfram í stjórn.

Hægt er að lesa fundargerðina undir „Um félagið“

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Nýir menn í stjórn

Melaflug í desember blíðunni

Mætt var á Melgerðismela í hádeginu og flogið fram í myrkur (til 15:00 hehe) í frábæru veðri og skemmtum okkur frábærlega.

Setti myndir og vídeó inná „Myndir“

DSC06650small

kíkið á þær
Kveðja fly

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Melaflug í desember blíðunni

Allt að gerast á Frétta vefnum

Við hjá FMFA erum á fullu við að smíða þessa dagana og póstum árangurin á Frétta vef flugmódelmanna á Íslandi sjá HÉR

HÉR er smíðað á Grísará

og  HÉR er smíðað í Brekkusíðu 1

Kveðja fly

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Allt að gerast á Frétta vefnum

Vel heppnuð veisla

Flott afmælisterta

Flott afmælisterta

Veislan sem haldin var á laugardag í tilefni af því að þrjátíu ár eru liðin frá því Flugmódelfélag Akureyrar var stofnað var sérlega vel heppnuð. Á þriðja tug módelmanna og maka mættu í Flugsafn Íslands og fengu sér afmælisköku, kaffi, snittur og vín saman á meðan fornir tímar og taktar voru rifjuð upp.

Kristján Víkingsson og Björn Sigmundsson sögðu frá stofnun félagsins. Stofnfélagar voru hugsanlega fimm, samkvæmt því sem þeir höfðu rifjað upp, þeir tveir, Þorsteinn Eiríksson, Guðmundur Karl Jónsson og Einar Páll Einarsson. Félagið var stofnað upp úr flugsýningu sem haldin var á flugvellinum á Akureyri síðla sumars 1979. Á þeirri sýningu flugu Einar Páll og Jón Pétursson módelum og þeir voru síðan aðal kennarar módelmanna á Akureyrir þangað til þeir höfðu áð tökum á stýringunum.

Ýmislegt fleira skemmtilegt kom fram í veislunni og verður hugsanlega sagt frá því hér síðar. Þangað til er hægt að Skoða myndir frá veislunni.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Vel heppnuð veisla

Melaslúttið . grillveisla

Vélflugfélagið ætlar að halda Melaslútt á Föstudaginn 18 september næstkomandi og allir flugáhugamenn og konur velkomin. Mæting er á milli 19:00 og 20.00 og byrjað að grilla kl 20:00.

Módelmenn sýnum nú góðan lit og mætum með bjórinn í grillið og chillum fram á kvöld

IMG_6964_small

GHIMG_7325_smallplast

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Melaslúttið . grillveisla

melar 5. sept 09

Skrapp með Aviatorinn á mela í morgun, heiðskýrt og logn, frábært veður og frábært að fljúga. Kv, Kip

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við melar 5. sept 09

Haustar að

Klúbbakvöldin á fimmtudögum hafa verið skemmtileg á Melunum í sumar og flest kvöld hefur verið hægt að fljúga. Nú er hinsvegar komið haust og upp úr hálf níu er orði það dimmt að ekki er mögulegt að fljúga lengur. Því verða ekki fleiri klúbbakvöld þar fyrr en næsta sumar. Þeir sem vilja geta, hins vegar, mætt í skúrinn á Grísará á fimmtudagskvöldum til að fá smá balsaryk, kaffi og hugsanlega smá kex eða súkkulaði.

gaui

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Haustar að

Vel heppnuð flugkoma

Flugkoman 2009 var einstaklega vel heppnuð. Fyrir það fyrsta, þá var sérlega gott veður allan daginn, um 10 til 15 stiga hiti, andvari að sunnan en lítið sólskin. Þrjátíu og tveir flugmenn skráðu sig á flugkomuna, flestir með fjölda módela, þannig að það er óhætt að segja að það hafi verið yfir 100 módel á staðnum.

Flug byrjaði vel fyrir klukkan 9 og stóð yfir nær stanslaust langt fram á kvöld. Um kvöldið var svo sameiginlegt grill sem um 30 manns mættu í og skemmtu sér vel fram á nóttina.

Hægt er að skoða fjölda mynda frá flugkomunni á myndasíðu FMFA.

Ég vil þakka öllum þátttakendum fyrir skemmtilegan dag og hlakka til að hitta ykkur öll aftur laugardaginn 7. ágúst 2010.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Vel heppnuð flugkoma

Flugkoman 2009

Flugmódel af öllum stærðum og gerðum

Flugmódel af öllum stærðum og gerðum

Hin árlega flugkoma Flugmódelfélags Akureyrar verður haldin á Melgerðismelum laugardaginn 8. ágúst við flugstöð Þórunnar Hyrnu. Þar verður gestum og gangandi seldar veitingar frá 10 -17, kaffi og meðlæti og ætti fæstir að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Þennan dag tjöldum við flugmódelmenn öllu til og drögum fram flest allt sem flýgur. Flug byrjar klukkan 09:00.

Flogið verður flugmódelum af öllum gerðum, frá tvíþekjum úr fyrra stríði til nútíma þota sem fljúga hraðar en hljóðið.

Um kvöldið verður grillað við Hyrnuna og verður rukkað fyrir það á staðnum og/eða seldir matarmiðar yfir daginn.

Þráðlaust net er á staðnum þannig að menn geta komið með ferðatölvur og tengst Internetinu.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Flugkoman 2009