Vængflötur reiknaður

 fyrir beina, misbreiða og deltavængi

 Til að finna út hver vænghleðslan er, þá verðum við fyrst að reikan út vængflötinn. Vængflötur í Evrópu er alltaf gefinn í fersentimetrum (sm2) eða ferdesimetrum (dm2, sem er algengara), en í Bandaríkjunum nota þeir fertommur (in2).

 Hvers vegna vængflöturinn er mikilvægur

  •  Einn og sér er vængflöturinn ekkert merkilegur. Við verðum, hins vegar, að reikna hann út til að geta ákvarðað vænghleðslu, sem er mjög mikilvæg.

Vængflötur á flugvélum með marga vængi

  •  Reiknaðu hvern væng fyrir sig. Leggðu þá síðan saman til að finna heildar vængflötinn.

Athugaðu

  • Ef þú ert að smíða úr kitti eða eftir teikningu, þá ætti vængflöturinn að vera tilgreindur á kassanum, í leiðbeiningunum eða á teikningunni.
  • Þegar maður reiknar flötinn fyrir vænginn eða stélflötinn, þá tekur maður með þann hluta sem gengur í gegnum skrokkinn, þó þetta búi ekki til neitt lift.

Vængflötur reiknaður fyrir beinan væng

Þetta er bara flötur á ferhyrningi og er reiknaður með því að margfalda lengdina með hæðinni. Í flugeðlisfræði heitir þetta:

vængflötur = vænghaf x vængbreidd

 wing_area_01

Vængflötur reiknaður fyrir misbreiðan væng

Til að finna flatarmál á misbreiðum væng notar maður formúluna fyrir trapísu. Byrjaðu á því að finna meðal vængbreidd og margfaldaðu hana með vænghafinu:

 Meðal vængbreidd = ( Rótarbreidd + Endabreidd) / 2

 wing_area_02

Vængflötur = vænghaf x meðal vængbreidd

Athugaðu: Það skiptir ekki máli hvort vængurinn er aftursveigður eða ekki. Formúlan fyrir misbreiðan væng er notuð sama hversu aftursveigður hann er.

Ef vængurinn mjókkar í þrepum, þá er hver trapísa reiknuð fyrir sig og þær síðan lagðar saman.

Vængflötur fundinn fyrir deltavæng

Ef endabreiddin á deltavæng er meiri en 0 sm, þá er notuð formúlan fyrir misbreiðan væng eins og sýnt er að ofan.

delta_01

Deltavængur með enda sem er breiðari en 0 sm

 Ef endabreiddin á deltavæng er 0 sm, þá er notuð formúlan fyrir flatarmál þríhyrnings:

 Vængflötur = 1/2 x vænghafið x rótarbreiddin

 delta_02

Deltavængur með enda sem er 0 sm á breidd


Höfundarréttur © 2003 Paul K. Johnson

Þýtt með leyfi höfundar