Greinasafn eftir: Gaui

Flugkoma FMFA 2013

Flugkoma FMFA var haldin á Melgerðismelum laugardaginn 10. ágúst.  Búið var að taka melana í gegn svo um munaði og brautirnar voru eggsléttar og mjúkar svo unun var að taka á loft og lenda.  Fjöldi flugmódelmanna kom að sunnan, kannski … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Flugkoma FMFA 2013

Fimmtudagshittingur

Nú ætlum við að hittast á Melgerðismelum á fimmtudagskvöldum eins og undanfarin ár.  Við fljúgum fyrir austan Hyrnuna ef það er veður en fáum okkur vöfflur og kaffi ef ekki. Sjáumst.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Fimmtudagshittingur

Upphafshátíð Flugklúbbs Íslands

Flugklúbbur Íslands auglýsir „Grand Opening“ eða upphafshátíð á Melgerðismelum laugardaginn 25. maí klukkan 7.  Boðið verður upp á grillmat og bjór.  Grillið kostar kr. 1.000,- og bjórinn kr. 500,-. Módelmenn eru hvattir til að fjölmenna.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Upphafshátíð Flugklúbbs Íslands

Sumardagurinn fyrsti á Melgerðismelum

Gengur þú með flugbakteruna vilt þú gera eithvað með hana kannski bara sjá og njóta  Vélflugfélagið Svifflugfélagið Flugmódelfélagið Fisfélagar Bjóðum alla velkomna Sumardaginn fyrsta í rjómavöfflur og kakó í   félagsaðstöðu okkar Hyrnunni á opnum degi á Melgerðismelum frá 10 til 16 þar sem öll … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Sumardagurinn fyrsti á Melgerðismelum

Kassagrams í slippnum

Það verður eins konar kassagrams í slippnum á fimmtudag. Jón Pétursson sendir okkur nokkur módel til að skoða og eitthvað dót með. Það verður hægt að skoða það sem hann sendir og hugsanlega gera góð kaup.

Birt í Fréttir | Slökkt á athugasemdum við Kassagrams í slippnum

Aðalfundur FMFA haldinn

Í dag var aðalfundur FMFA haldinn í kaffistofunni í Slippnum. Mjög góð mæting var á fundinn og venjuleg aðalfundarstörf kláruð á góðum millitíma. Klúbburinn er í góðum málum og framtíðin björt. Árni Hrólfur hætti í stjórn af heilsufarsástæðum, en í … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | Ein athugasemd

Aðalfundur FMFA

Aðalfundur Flugmódelfélags Akureyrar verður haldinn laugardaginn 2. febrúar 2013 klukkan 14:00 í kaffistofunni í Slippnum. Fundarefni venjulega aðalfundarstörf: Skýrsla um starfsemi á síðasta ári. Reikningar lagðir fram til samþykktar. Kosning stjórnar og endurskoðanda. Kosning í nefndir. Tillögur teknar til meðferðar. … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | Ein athugasemd

Litlu jólin

Flugmódelfélag Akureyrar hélt upp á Litlu Jólin á laugardaginn 8. desember á smíðaverkstæðinu í Slippnum. Sveinbjörn kom með heimagerðar snittur og snakk, klúbburinn bauð upp á smá snafs en að öðru leiti kom hver og einn með það sem hann … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | 7 athugasemdir

Líf í Slippnum

Það er alltaf mikið líf í smíða aðstöðu félagsins í Slippnum. Margir koma þangað við hvert tækifærti og taka nokkrar límingar, en flestir koma á fimmtudagskvöldum og eftir hádegi á laugardögum. Myndir frá smíðasamkomum í Slippnum má sjá á andlitsbókarsíðum … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | 87 athugasemdir

Góðir gestir á leiðinni

Það er staðfest og frá gengið að Steve, vinur okkar, Holland og Sharon Stiles vinkona hans ætla að koma og fljúga með okkur á flugkomunni 11. ágúst. Þau koma með Norrænu og með í för verða nokkur módel. Þau helstu … Halda áfram að lesa

Birt í Fréttir | 129 athugasemdir