{"id":20,"date":"2007-02-23T08:53:47","date_gmt":"2007-02-23T08:53:47","guid":{"rendered":"http:\/\/new.flugmodel.is\/?page_id=20"},"modified":"2013-06-24T21:04:19","modified_gmt":"2013-06-24T21:04:19","slug":"fer%c3%b0in-til-cosford","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/www.flugmodel.is\/?page_id=20","title":{"rendered":"Cosford 2004"},"content":{"rendered":"<dl>\n<dt>Grein skrifu\u00f0 fyrir Large Model Association Journal og \u00fe\u00fddd \u00e1 \u00edslensku fyrir vef FMF<\/dt>\n<\/dl>\n<h2>\u201eAf hverju hefur \u00fe\u00fa ekki m\u00f3del me\u00f0 \u00fe\u00e9r n\u00e6st?\u201c<\/h2>\n<p>Skj\u00f6ldur Sigur\u00f0sson, einn besti m\u00f3delsmi\u00f0ur \u00cdslands hefur fari\u00f0 til Cosford \u00e1 Englandi \u00ed m\u00f6rg \u00e1r til a\u00f0 vera \u00fear vi\u00f0 st\u00f3rm\u00f3delflugkomu <a href=\"http:\/\/www.largemodelassociation.com\">Large Model Association<\/a>. \u00dear hefur hann eignast marga vini og hefur fengi\u00f0 meira frelsi til a\u00f0 a\u00f0 r\u00e1fa um sv\u00e6\u00f0i\u00f0 og tala vi\u00f0 m\u00f3delmenn en a\u00f0rir gestir. Ekki lei\u00f0 \u00e1 l\u00f6ngu \u00fear til spurningin h\u00e9r fyrir ofan f\u00f3r a\u00f0 koma. \u00cd hvert sinn fann Skj\u00f6ldur \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 koma ekki me\u00f0 m\u00f3del.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/skjoldur1.jpg\" width=\"200\" height=\"150\" \/><br \/>\nSkj\u00f6ldur ra\u00f0ar m\u00f3delum \u00ed kassana<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>S\u00ed\u00f0an kom \u00e1g\u00fast 2003. Skj\u00f6ldur og flugm\u00f3delkl\u00fabbarnir \u00ed sameiningu fengu \u00feau Steve Holland, Sharon Stiles og Richard Rawle til a\u00f0 koma til \u00cdslands og s\u00fdna \u00cdslendingum nokkur m\u00f3del, b\u00e6\u00f0i st\u00f3r og sm\u00e1 og hvernig \u00e1 a\u00f0 flj\u00faga \u00feeim. Spurningin kom upp enn eitt sinn og \u00ed \u00feetta skipti haf\u00f0i Skj\u00f6ldur engar afsakanir. Steve og Richard sko\u00f0\u2019u\u00f0u m\u00f3delin hans Skjaldar og l\u00fdstu \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru bygg\u00f0 samkv\u00e6mt str\u00f6ngustu reglum \u00feannig a\u00f0 \u00feau g\u00e6tu flogi\u00f0 \u00e1 st\u00e6rstu og bestu m\u00f3delflugkomu \u00ed Englandi.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 a\u00f0 fara til Englands me\u00f0 nokkur m\u00f3del er ekki au\u00f0velt verk. Skj\u00f6ldur \u00e1kva\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 fara \u00feanga\u00f0 me\u00f0 \u00ferj\u00fa: 1\/8 skala DC-3 sem hann haf\u00f0i byggt eftir teikningum fr\u00e1 Ziroli, Bud Nosen P51Mustang \u00ed skalanum 1\/4,3, og 1\/8 skala Ziroli B25 sem hann var um \u00fea\u00f0 bil a\u00f0 kl\u00e1ra. \u00deessi \u00ferj\u00fa risam\u00f3del ur\u00f0u a\u00f0 fara \u00ed st\u00f3ra kassa til a\u00f0 komast me\u00f0 flugi til Englands.<\/p>\n<p>Kassarnir undir m\u00f3delin ur\u00f0u a\u00f0 vera st\u00f3rir. Eftir a\u00f0 hafa ra\u00f0a\u00f0 m\u00f3delunum saman vandlega til a\u00f0 \u00feau t\u00e6kju sem minnst pl\u00e1ss, \u00fe\u00e1 ur\u00f0u kassarnir tveir 260 sentimetrar \u00e1 lengd, 120 \u00e1 h\u00e6\u00f0 og 70 \u00e1 breidd. Semsagt, st\u00f3rir. Spurningin sem kom \u00fe\u00e1 upp var hvort \u00feeir k\u00e6must inn \u00ed venjulega flugv\u00e9l.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/skjoldur3.jpg\" width=\"200\" height=\"150\" \/><br \/>\n\u00dea\u00f0 fer vel um m\u00f3delin \u00fearna<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Skj\u00f6ldur \u00feurfti l\u00edka li\u00f0 af a\u00f0sto\u00f0arm\u00f6nnum sem vildu borga sj\u00e1lfir undir sig til Englands. Br\u00e1\u00f0lega g\u00e1fu \u00fer\u00edr \u00cdslendingar og einn Englendingur sig fram, \u00e1samt flugm\u00f6nnunum tveim. Steve Holland \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 flj\u00faga tveggja-hreyfla m\u00f3delunum, Richard Rawle \u00e1tti a\u00f0 flj\u00faga orrustuv\u00e9linni og a\u00f0rir \u00ed li\u00f0inu voru Jakob J\u00f3nsson, Akureyringarnir Gu\u00f0j\u00f3n \u00d3lafsson og Gu\u00f0mundur Haraldsson, og Stephen Atherton fr\u00e1 Englandi: h\u00f3pur me\u00f0 meira en hundra\u00f0 \u00e1ra m\u00f3delreynslu saman.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 koma m\u00f3delunum saman f\u00f3ru Skj\u00f6ldur og Jakob til Englands viku \u00e1\u00f0ur en s\u00fdningin var, en n\u00fa lenti lei\u00f0angurinn \u00ed fyrstu (en ekki s\u00ed\u00f0ustu) keldunni: m\u00f3delin f\u00f3ru ekki um bor\u00f0 \u00ed flugv\u00e9lina. Eftir a\u00f0 hafa leita\u00f0 um allt \u00e1 Heathrow, kom sk\u00fdringin \u00ed lj\u00f3s: hla\u00f0mennirnir \u00e1 Heathrow snerta ekki \u00e1 neinu sem ekki flokkast undir \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera \u201efer\u00f0ataska\u201c og vegna \u00feess a\u00f0 hla\u00f0mennirnir \u00e1 \u00cdslandi vissu \u00feetta, \u00fe\u00e1 settu \u00feeir kassana aldrei um bor\u00f0 \u00ed velina. N\u00fa \u00feurfti Skj\u00f6ldur a\u00f0 fjarst\u00fdra me\u00f0 s\u00edmanum s\u00ednum \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00f3delin f\u00e6ru fr\u00e1 \u00cdslandi til Englands. Eftir \u00ferj\u00e1 taugastrekkta daga ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 loksins me\u00f0 tregri a\u00f0sto\u00f0 \u00feriggja flugf\u00e9laga. A\u00f0 lokum flutti Blue Bird fyrirt\u00e6ki\u00f0 m\u00f3delin til Austur Angl\u00edu \u00ed Englandi \u00fear sem Steve og Skj\u00f6ldur g\u00e1tu s\u00f3tt \u00feau eftir langa fer\u00f0 \u00ed sendifer\u00f0ab\u00edlnum.<\/p>\n<p>N\u00fa t\u00f3ku Steve og Richard vi\u00f0 og byrju\u00f0u a\u00f0 \u201elaga\u201c m\u00f3delin. N\u00e6stum\u00fev\u00ed allar raflagnir voru rifnar \u00fat og \u00ed sta\u00f0inn voru settir v\u00edrar og tengi sem \u00e1ttu a\u00f0 vera \u00f6rugg samkv\u00e6mt enskum st\u00f6\u00f0lum. M\u00f3torarnir voru sko\u00f0a\u00f0ir innan og utan og B25 m\u00f3delinu testflogi\u00f0. Steve og Richard flugu l\u00edka Douglasinum og Mustanginum og allt f\u00f3r eins og smurt, nema a\u00f0 sm\u00e1 \u00f3happ \u00ed lendingu beygla\u00f0i hj\u00f3lastelli\u00f0 \u00e1 Douglasinum.<\/p>\n<h2>Hinir tveir<\/h2>\n<p>Hinir tveir li\u00f0smennirnir fr\u00e1 \u00cdslandi, Gu\u00f0j\u00f3n og Gu\u00f0mundur, komu til Englands \u00e1 fimmtudeginum fyrir Cosford s\u00fdninguna og byrju\u00f0u \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 villast. \u00dea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 vera l\u00e9tt verk og l\u00f6\u00f0urmannlegt a\u00f0 fara eftir M40 hra\u00f0brautinni fr\u00e1 London til Birmingham, en nei takk, vi\u00f0 t\u00f3kum rangan afleggjara og endu\u00f0um \u00e1 hra\u00f0braut M1 og f\u00f3rum \u00fear me\u00f0 frekar \u00ed nor\u00f0-austur en nor\u00f0 vestur eins og til st\u00f3\u00f0. A\u00f0 auki haf\u00f0i einhverjum snillingi dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 n\u00fdjum hluta vi\u00f0 M6 me\u00f0 tollhli\u00f0um eftir a\u00f0 kortab\u00f3kin sem vi\u00f0 vorum me\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 prentu\u00f0. \u00dea\u00f0 er hreint kraftaverk a\u00f0 vi\u00f0 endu\u00f0um ekki einhvers sta\u00f0ar \u00ed Skotlandi.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part2-01.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" \/><br \/>\nGu\u00f0mundur f\u00e6r s\u00e9r kaffi \u00ed Leifsst\u00f6\u00f0<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Vi\u00f0 fundum Telford a\u00f0 lokum (en \u00feanga\u00f0 h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 reynt a\u00f0 stefna) og viltumst umsvifalaust aftur vi\u00f0 a\u00f0 leita a\u00f0 h\u00f3telinu okkar. Vi\u00f0 \u00feurftum a\u00f0 hringja tvisvar \u00ed h\u00f3teli\u00f0 og f\u00e1 lei\u00f0beiningar (hver segir a\u00f0 karlmenn bi\u00f0ji aldrei um lei\u00f0beiningar) og eftir a\u00f0 hafa eki\u00f0 \u00ed hringi \u00ed d\u00e1l\u00edtinn t\u00edma fundum vi\u00f0 sm\u00e1b\u00e6inn Ironbridge, en \u00fear var h\u00f3teli\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um panta\u00f0. \u00dea\u00f0 er ruglingslegt a\u00f0 aka \u00f6fugu megin \u00e1 veginum og \u00ed hvert sinn sem vi\u00f0 h\u00e6g\u00f0um \u00e1 okkur til a\u00f0 lesa \u00e1 skiltin, \u00fe\u00e1 kom \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ur breskur \u00f6kuma\u00f0ur aftan a\u00f0 okkur og flauta\u00f0i eins og hann fengi borga\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0, \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 ur\u00f0um a\u00f0 halda \u00e1fram \u00ed sta\u00f0inn fyrir a\u00f0 stoppa. Hvernig er h\u00e6gt a\u00f0 aka \u00ed Englandi \u00e1n \u00feess a\u00f0 missa viti\u00f0?<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 \u00feeir komust loks \u00e1 h\u00f3teli\u00f0 fengu \u00feessir tveir fer\u00f0amenn fr\u00e1b\u00e6ra hugmynd: f\u00f6rum og finnum Cosford; \u00fe\u00e1 getum vi\u00f0 fari\u00f0 \u00feanga\u00f0 snemma \u00ed fyrram\u00e1li\u00f0 og sko\u00f0a\u00f0 safni\u00f0 allan daginn.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 reyndist au\u00f0velt a\u00f0 finna Cosford \u00fev\u00ed a\u00f0 einhver g\u00f3\u00f0hjarta\u00f0ur ma\u00f0ur haf\u00f0i sett upp r\u00f6\u00f0 af gulum skiltum sem v\u00edsu\u00f0u veginn a\u00f0 St\u00f3rm\u00f3delaflugkomunni. Allt \u00ed einu s\u00e1um vi\u00f0 flugbrautir og st\u00f3rt gr\u00e6nt skilti sem \u00e1 st\u00f3\u00f0 COSFORD. Vi\u00f0 beyg\u00f0um til vinstri og \u00f3kum (kanski ekkert s\u00e9rlega h\u00e6gt) a\u00f0 byggingum sem vi\u00f0 h\u00e9ldum a\u00f0 v\u00e6ru safni\u00f0. Allt \u00ed einu stigu tveir illilegir hermenn me\u00f0 st\u00f3rar hr\u00ed\u00f0skotabyssur \u00ed veg fyrir okkur og spur\u00f0u okkur (alls ekki neitt kurteislega) hvert vi\u00f0 v\u00e6rum a\u00f0 fara og hva\u00f0 vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um a\u00f0 gera \u00fear. Vi\u00f0 \u00fatsk\u00fdr\u00f0um frekar taugastrekktir a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum a\u00f0 leita a\u00f0 st\u00f3ru m\u00f3delunum og \u00fe\u00e1 sl\u00f6ku\u00f0u hermennirnir s\u00fdnilega \u00e1 og s\u00fdndu okkur hvert vi\u00f0 hef\u00f0um \u00e1tt a\u00f0 fara. L\u00edta terroristar virkilega \u00fat eins og tveir viltir \u00cdslendingar?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 f\u00f3rum a\u00f0eins lengra og fundum r\u00e9tta sta\u00f0inn. Vi\u00f0 s\u00e1um meira a\u00f0 segja nokkra m\u00f3delmenn a\u00f0 setja risam\u00f3delin s\u00edn saman fyrir framan tj\u00f6ldin og h\u00fasb\u00edlana sem \u00feeir gistu \u00ed og f\u00f3rum a\u00f0 hlakka til flugkomunnar. \u00dea\u00f0 kv\u00f6lda\u00f0i hratt og vi\u00f0 vildum fara a\u00f0 koma okkur almennilega fyrir \u00e1 h\u00f3telinu, en \u00feegar vi\u00f0 komum a\u00f0 hli\u00f0inu, \u00fe\u00e1 haf\u00f0i einhver l\u00e6st \u00fev\u00ed me\u00f0 st\u00f3rum hengil\u00e1s. Vi\u00f0 vorum l\u00e6stir inni og hugsunin um a\u00f0 vi\u00f0 \u00feyrftum jafnvel a\u00f0 gista alla n\u00f3ttina \u00ed litlum b\u00edlaleigub\u00edl var ekki g\u00f3\u00f0. Svo vi\u00f0 f\u00f3rum a\u00f0 leita a\u00f0 einhverjum sem g\u00e6ti veri\u00f0 me\u00f0 lykil og eftir a\u00f0 hafa spurt \u00ferj\u00e1 e\u00f0a fj\u00f3ra menn sem vi\u00f0 hittum, \u00fe\u00e1 fundum vi\u00f0 r\u00f6dd Arthur Searl. Vi\u00f0 hittum manninn aldrei \u00ed eigin pers\u00f3nu, en r\u00f6dd hans er r\u00f6dd \u00feess sem r\u00e6\u00f0ur. Hann r\u00e9\u00f0 l\u00edka vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00fdsa f\u00f3lki sem tekst a\u00f0 l\u00e1ta l\u00e6sa sig inni eftir lokun. Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um \u00fearna \u00ferj\u00fa n\u00fd or\u00f0 \u00ed ensku. \u00c9g fletti \u00feeim upp eftir a\u00f0 \u00e9g kom heim og \u00feau eru notu\u00f0 til a\u00f0 l\u00fdsa \u00e1 mj\u00f6g litr\u00edkan h\u00e1tt a\u00f0ger\u00f0um og vitsmunum f\u00f3lks sem ekki er me\u00f0 heila e\u00f0a h\u00e6fileikann til a\u00f0 nota hann. \u00deessi or\u00f0 eru ekki af \u00feeim toga sem h\u00e6gt er a\u00f0 prenta \u00e1 Netinu, \u00feannig a\u00f0 \u00e9g set \u00feau ekki h\u00e9r.<\/p>\n<h2>F\u00f6studagur<\/h2>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-01.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-01a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nFl\u00f3in flj\u00fagandi: fysta heimasm\u00ed\u00f0a\u00f0a flugv\u00e9lin.<br \/>\nH\u00fan haf\u00f0i alvarlegan h\u00f6nnunargalla og gat \u00ed raun<br \/>\nekki flogi\u00f0.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Vi\u00f0 vorum \u00e1 fer\u00f0inni snemma \u00e1 f\u00f6studagsmorgni og, eins og svo margir a\u00f0rir, \u00e1 lei\u00f0 til Cosford. Skj\u00f6ldur og Jakob fylltu sendifer\u00f0ab\u00edlinn hans Steve me\u00f0 m\u00f3delum, svo a\u00f0 hann gat bara haft me\u00f0 s\u00e9r h\u00e1lf-skala Zlininn: \u00fea\u00f0 var bara ekki meira pl\u00e1ss \u00ed b\u00edlnum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Gu\u00f0mundur f\u00f3rum \u00ed safni\u00f0 \u00ed Cosford og n\u00fana fengum vi\u00f0 a\u00f0 fara inn \u00ed flugsk\u00fdlin. Vi\u00f0 byrju\u00f0um \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0ina. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um sjaldan s\u00e9\u00f0 anna\u00f0 eins safn af b\u00f3kum um flugv\u00e9lar og slepptum fram af okkur beislinu. Vi\u00f0 keyptum svo margar b\u00e6kur a\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 snemma ratlj\u00f3st a\u00f0 vi\u00f0 g\u00e6tum engan vegin bori\u00f0 \u00fe\u00e6r um allt safni\u00f0, \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurftum a\u00f0 fara me\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00ed b\u00edlinn fyrst. Kannski hef\u00f0i veri\u00f0 viturlegra a\u00f0 enda \u00ed b\u00fa\u00f0inni, e\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-02.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-02a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nBeri\u00f0 sama st\u00e6r\u00f0ina \u00e1 JU 52 v\u00e9linni og Gu\u00f0mundi.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Safni\u00f0 \u00ed Cosford er eitthva\u00f0 sem allir flug\u00e1hugamenn \u00e6ttu a\u00f0 sko\u00f0a. \u00dearna er safna\u00f0 saman alls konar flugv\u00e9lum og t\u00e6kjum \u00feeim tengd, allt fr\u00e1 fyrstu d\u00f6gum flugsins og fram \u00e1 okkar daga. \u00dea\u00f0 sem kom okkur mest \u00e1 \u00f3vart var hversu st\u00f3rar flugv\u00e9larnar eru. \u00de\u00e6r eru miklu st\u00e6rri en ma\u00f0ur heldur eftir a\u00f0 hafa sko\u00f0a\u00f0 lj\u00f3smyndir e\u00f0a kvikmyndir af \u00feeim. Junkers Ju 52 v\u00e9lin fr\u00e1 \u00de\u00fdskalandi til d\u00e6mis er RISAST\u00d3R og V2 flugskeyti\u00f0 l\u00edka. Miklu st\u00e6rra en ma\u00f0ur haf\u00f0i \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r. \u00c1 hinn b\u00f3ginn er japanska sj\u00e1lfsmor\u00f0sflugv\u00e9lin Kirsuberjabl\u00f3mi\u00f0 svo l\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e6tti sm\u00ed\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00ed fullri st\u00e6r\u00f0 sem m\u00f3del \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i mikil fyrirfer\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed. Fl\u00f3in flj\u00fagandi fr\u00e1 Mignet g\u00e6ti l\u00edka or\u00f0i\u00f0 \u00e1hugavert m\u00f3del ef ma\u00f0ur ger\u00f0i sm\u00e1 breytingar \u00e1 \u00fev\u00ed til a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti \u00ed raun flogi\u00f0. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri l\u00edti\u00f0 m\u00f3del \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed h\u00e1lfum skala.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-03.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-03a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nKirsuberjabl\u00f3mi\u00f0 er l\u00edtil flugv\u00e9l.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Vi\u00f0 hittum Steve, Skj\u00f6ld og Jakob um h\u00e1degisbili\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 \u00e1ttum enn eftir a\u00f0 sko\u00f0a eitt flugsk\u00fdli, en \u00feeir voru \u00fe\u00e1 a\u00f0 skr\u00ed\u00f0a inn eftir heilmikinn akstur fr\u00e1 Bristol. Vi\u00f0 fengum okkur a\u00f0 bor\u00f0a og sko\u00f0u\u00f0um s\u00ed\u00f0an s\u00ed\u00f0asta sk\u00fdli\u00f0 saman. \u00deegar vi\u00f0 komum \u00fat s\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 heilmargir h\u00fasb\u00edlar og sendifer\u00f0ab\u00edlar me\u00f0 h\u00fasvagna \u00ed eftirdragi h\u00f6f\u00f0u ra\u00f0a\u00f0 s\u00e9r upp vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 sk\u00fdlinu eins og kappakstursb\u00edlar \u00e1 r\u00e1sl\u00ednu. \u00c9g spur\u00f0i engan hvers vegna, \u00e9g bara ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru \u00fearna \u00ed r\u00f3legheitum a\u00f0 sleikja s\u00f3lskini\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00feeir f\u00e6ru \u00e1 sinn sta\u00f0 \u00e1 tjaldst\u00e6\u00f0inu. Klukkan h\u00e1lf fimm var\u00f0, hins vegar, allt brj\u00e1la\u00f0 og kappakstur virtist kominn af sta\u00f0. H\u00fasb\u00edlarnir og sendifer\u00f0ab\u00edlarnir voru settir \u00ed gang og hentust \u00ed loftk\u00f6stum \u00fat eftir einu \u00fev\u00ed st\u00e6rsta t\u00fani sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 \u00ed Englandi. Hva\u00f0 \u00ed \u00f3sk\u00f6punum var a\u00f0 gerast?<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-04.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-04a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nV2 flugskeyti\u00f0. St\u00e6rra en ma\u00f0ur haf\u00f0i \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r.<br \/>\nGu\u00f0mundur f\u00f3r inn \u00e1 bannsv\u00e6\u00f0i til a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti teki\u00f0 af<br \/>\nhonum myndir vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 \u00feessum flugv\u00e9lum<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00de\u00e1 rann upp fyrir okkur lj\u00f3s: \u00feeir sem komu me\u00f0 m\u00f3del til a\u00f0 flj\u00faga \u00e1 s\u00fdningunni m\u00e1ttu tjalda vi\u00f0 flugbrautina! Fr\u00e1b\u00e6r hugmynd. Og n\u00fa var hafin kappakstur um a\u00f0 koma s\u00e9r fyrir \u00e1 bestu st\u00f6\u00f0unum. \u00deetta leit \u00fat eins og h\u00f3pur f\u00f3lks sem hleypur \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 str\u00e6t\u00f3 og \u00e6tlar allt a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r \u00ed bestu s\u00e6tin. \u00deetta gat or\u00f0i\u00f0 \u00e6sandi. Kannski eitt e\u00f0a tv\u00f6 slagsm\u00e1l. Vi\u00f0 vorum tilb\u00fanir a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feeim og sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 vinir okkar n\u00e6\u00f0u g\u00f3\u00f0um sta\u00f0 fyrir h\u00fasb\u00edlana s\u00edna og vagna. \u00deetta leit \u00fat eins og ma\u00f0ur g\u00e6ti \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 ger\u00f0ist \u00e1 \u00cdslandi og V\u00edkingaskapi\u00f0 svall \u00ed okkur Gu\u00f0mundi \u00feegar vi\u00f0 fengum far \u00ed sendifer\u00f0ab\u00edl formanns LMA, Dave Johnson.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-05.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-05a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nV1, eitt hr\u00e6\u00f0ilegasta, en \u00fe\u00f3 \u00f3skilvirkasta vopn \u00dej\u00f3\u00f0verja \u00ed<br \/>\ns\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ld<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>En \u00feegar vi\u00f0 komum n\u00e6r flugbrautinni \u00fe\u00e1 var okkur lj\u00f3st a\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn fyrir slagsm\u00e1l fram \u00ed rau\u00f0an dau\u00f0an fyrir bestu st\u00f6\u00f0unum, \u00fe\u00e1 var \u00feetta alveg einstaklega breskur atbur\u00f0ur. Allir virtust hafa fyrirfram \u00e1kve\u00f0inn sess og v\u00f6gnunum var ra\u00f0a\u00f0 reglulega og beint upp me\u00f0 r\u00e9tt bil \u00e1 milli \u00feannig a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 leggja b\u00edlum vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 \u00feeim eftir \u00fe\u00f6rfum. L\u00edti\u00f0 spennandi \u00fea\u00f0!<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-06.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-06a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nSvartur Mustang, afar k\u00fal og flottur<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Br\u00e1tt f\u00f3ru menn a\u00f0 draga m\u00f3delin s\u00edn \u00fat \u00e1 flugbrautina og flug h\u00f3fst. Ekkert rosalegt flug, en samt einstaka fr\u00e1b\u00e6rt m\u00f3del. \u00dea\u00f0 var greinilegt a\u00f0 st\u00f3ru m\u00f3delinum yr\u00f0i ekki flogi\u00f0 fyrr en daginn eftir.<\/p>\n<p>Um lei\u00f0 og LMA tjaldi\u00f0 opna\u00f0i gengum vi\u00f0 Gu\u00f0mundur \u00ed f\u00e9lagi\u00f0. \u00dea\u00f0 kom af sta\u00f0 umr\u00e6\u00f0u \u00ed h\u00fasvagninum hans Steve. Vegna \u00feess a\u00f0 fj\u00f6ldi LMA f\u00e9laga var a\u00f0 aukast \u00e1 \u00cdslandi og greinilegur \u00e1hugi fyrir a\u00f0 koma me\u00f0 m\u00f3del \u00e1 flugkomur f\u00e9lagsins, \u00fe\u00e1 var lj\u00f3st a\u00f0 einhver yr\u00f0i a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 gerast pr\u00f3fd\u00f3mari fyrir LMA \u00e1 Nor\u00f0urhjara. Steve ba\u00f0 um a\u00f0 s\u00e1 okkar sem haf\u00f0i veri\u00f0 lengst \u00ed hobb\u00edinu t\u00e6ki \u00feetta a\u00f0 s\u00e9r og eftir a\u00f0 hafa bor\u00f0i saman b\u00e6kur okkar var lj\u00f3st a\u00f0 \u00e9g var l\u00edklega b\u00fainn a\u00f0 stunda \u00feetta lengst, \u00fe\u00f3 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 s\u00f6nnu ekki elstur. \u00dear sem \u00e9g haf\u00f0i l\u00edka \u00fe\u00fdtt mest af pr\u00f3fareglum BMFA \u00e1 \u00edslensku, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri l\u00edklegt a\u00f0 \u00e9g \u00feekkti n\u00f3gu miki\u00f0 af reglunum til a\u00f0 taka pr\u00f3fd\u00f3marapr\u00f3f.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part3-07.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part3-07a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nFr\u00e1vinstri: Kallin sem var a\u00f0 taka pr\u00f3fi\u00f0, Steve Holland,<br \/>\nGu\u00f0j\u00f3n (sem var l\u00edka a\u00f0 taka pr\u00f3f) Skj\u00f6ldur, a\u00f0sto\u00f0arma\u00f0ur<br \/>\nkallsins sem var a\u00f0 taka pr\u00f3fi\u00f0. M\u00f3deli\u00f0 er illa sm\u00ed\u00f0a\u00f0ur<br \/>\nLj\u00faflingur (Super Lowley)<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Og \u00fea\u00f0 vildi til a\u00f0 einn ums\u00e6kjandi haf\u00f0i be\u00f0i\u00f0 Steve a\u00f0 halda fyrir sig flugpr\u00f3f LMA \u00feetta sama kv\u00f6ld. \u00deetta var n\u00fa sett \u00ed gang og \u00e9g \u00e1tti a\u00f0 fylgjast me\u00f0 pr\u00f3finu og sj\u00e1 hvernig Steve b\u00e6ri sig a\u00f0. \u00dea\u00f0 sem kom b\u00e6\u00f0i m\u00e9r og manninum sem var a\u00f0 taka pr\u00f3fi\u00f0 \u00e1 \u00f3vart var, a\u00f0 eftir flugi\u00f0 ba\u00f0 Steve mig um a\u00f0 gefa mitt \u00e1lit \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig manninum haf\u00f0i gengi\u00f0 og segja til um h\u00e6fni hans til a\u00f0 flj\u00faga. \u00c9g velti m\u00e1linu vandlega fyrir m\u00e9r \u00ed sm\u00e1 t\u00edma og komst s\u00ed\u00f0an a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 \u00e9g ger\u00f0i l\u00edkast til engum neinn grei\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0ur vi\u00f0 kallgreyi\u00f0. \u00cd heila m\u00edn\u00fatu lista\u00f0i \u00e9g galla sem \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 \u00e1 undirb\u00faningi hans og flugi og eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g nefndi fleiri amb\u00f6gur, \u00fev\u00ed daprari var\u00f0 ma\u00f0urinn \u00e1 svipinn. \u00dea\u00f0 var greinilegt a\u00f0 hann tr\u00fa\u00f0i ekki \u00fev\u00ed sem var a\u00f0 gerast. Hann vissi sem var a\u00f0 flugi\u00f0 hj\u00e1 honum haf\u00f0i ekki ver\u00f0i upp \u00e1 \u00fea\u00f0 besta, en \u00feetta var n\u00fa helst til miki\u00f0. \u00deegar \u00e9g haf\u00f0i loki\u00f0 m\u00e1li m\u00ednu sneri hann s\u00e9r til Steves, sem, \u00ed sta\u00f0inn fyrir a\u00f0 skella skollaeyrum vi\u00f0 \u00feessum uppist\u00f6nduga \u00fatlendingi og bullinu sem hann haf\u00f0i rutt \u00fat \u00far s\u00e9r, sam\u00feykkti allt sem hann haf\u00f0i sagt. Hann b\u00e6tti \u00fe\u00f3 nokkrum j\u00e1kv\u00e6\u00f0um punktum vi\u00f0 allt \u00feetta neikv\u00e6\u00f0a \u00edslenska raus. Ni\u00f0ursta\u00f0an var s\u00fa a\u00f0 \u00e9g n\u00e1\u00f0i m\u00ednu pr\u00f3fi og var or\u00f0inn fyrsti pr\u00f3fd\u00f3mari LMA \u00e1 \u00cdslandi. En aumingja kallinn f\u00e9ll og ver\u00f0ur a\u00f0 taka pr\u00f3fi\u00f0 aftur seinna.<\/p>\n<h2>Laugardagur :: Og svo var byrja\u00f0 a\u00f0 flj\u00faga.<\/h2>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-01.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-01a.jpg\" width=\"250\" height=\"171\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\n\u00cdslenska li\u00f0i\u00f0 setur saman m\u00f3delin<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 enginn okkar sem kom fr\u00e1 \u00cdslandi, nema ef til vill Skj\u00f6ldur, hafi s\u00e9\u00f0 svona m\u00f6rg m\u00f3del saman komin \u00e1 einn sta\u00f0. Og \u00fea\u00f0 l\u00edka svona st\u00f3r m\u00f3del.<\/p>\n<p>Fyrsta m\u00e1l \u00e1 dagskr\u00e1 var a\u00f0 gera m\u00f3delin hans Skjaldar tilb\u00fain. Steve \u00f3k \u00e1 sendifer\u00f0ab\u00edlnum \u00feanga\u00f0 sem hann vildi a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum og vi\u00f0 ruddum m\u00f3dleunum \u00fat \u00far b\u00edlnum og byrju\u00f0um a\u00f0 setja \u00feau saman, \u00f6ll nema Mustanginn. Richard \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 laga hann eitthva\u00f0 til. M\u00f3torinn \u00ed honum \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 ofhitna og hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 b\u00faa til loftspj\u00f6ls til a\u00f0 beina loftfll\u00e6\u00f0inu yfir hann. Vi\u00f0 stilltum l\u00edka nokkrum litlum \u00edslenskum f\u00e1num \u00ed kringum m\u00f3delin svo enginn v\u00e6ri \u00ed vafa um hva\u00f0an \u00feau v\u00e6ru.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-02.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-02a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nDR1 \u00fer\u00ed\u00feekja \u00ed h\u00e1lfum skala er ST\u00d3RT m\u00f3del<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Gu\u00f0mundur og \u00e9g eyddum n\u00e6sta h\u00e1lft\u00edmanum \u00ed a\u00f0 taka myndir. \u00c1 me\u00f0an vi\u00f0 ger\u00f0um \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 var kalla\u00f0 saman \u00e1 flugmannafund. \u00d3kei, vi\u00f0 erum ekki flugmenn, heldur a\u00f0sto\u00f0armenn, svo vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 fara \u00e1 fund. Vi\u00f0 h\u00e9ldum bara \u00e1fram a\u00f0 taka myndir. Svo f\u00f3rum vi\u00f0 \u00fat fyrir gir\u00f0inguna til a\u00f0 k\u00edkja \u00ed fyrsta skipti\u00f0 \u00e1 s\u00f6lub\u00e1sana sem b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 koma upp og seldu m\u00f3delv\u00f6rur til almennings \u00e1 ni\u00f0ursettu ver\u00f0i. Allt \u00ed einu kom Skj\u00f6ldur hlaupandi og sag\u00f0i okkur a\u00f0 vi\u00f0 fengjum ekki a\u00f0 fara inn fyrir gisr\u00f0inguna aftur. Allir me\u00f0limir li\u00f0sins \u00e1ttu a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 flugmannafunbdinn og f\u00e1 \u00fear sm\u00e1 l\u00edmmi\u00f0a sem heimila\u00f0i \u00feeim a\u00f0 fara inn og \u00fat um hli\u00f0i\u00f0 \u00e1 gir\u00f0ingunni.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-03.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-03a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\n<a href=\"myndir\/part4-04.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-04a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/> <\/a><br \/>\nTv\u00e6r st\u00f3rar og st\u00f3rkostlegar tv\u00ed\u00feekjur, Bulldog og<br \/>\nNieuport 28, b\u00e1\u00f0ar sm\u00ed\u00f0a\u00f0ar af Ian Turney-White<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Ekkert m\u00e1l! Vi\u00f0 f\u00f6rum bara og \u00fatsk\u00fdrum fyrir \u00feeim a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um misst af fundinum og \u00e6ttum a\u00f0 f\u00e1 mi\u00f0a. En \u00feegar vi\u00f0 n\u00e1lgu\u00f0umst hli\u00f0i\u00f0 s\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 hli\u00f0ver\u00f0irnir voru engir venjulegir 50 k\u00edl\u00f3a aumingjar, heldur tv\u00e6r st\u00e6rstu og \u00edllilegustu var\u00f0hunbdar sem nokkru sinni hafa vari\u00f0 inngang \u00ed \u00fea\u00f0 allra heilagasta af \u00f6llu heil\u00f6gu. \u00deeir voru a\u00f0 v\u00edsu ekki me\u00f0 sj\u00e1lfvirku vopnin sem hermennirnir h\u00f6f\u00f0u haft, en \u00feeir virtust ekkert s\u00ed\u00f0ur h\u00e6ttulegir. Vi\u00f0 n\u00e1lgu\u00f0umst \u00feessi v\u00f6\u00f0vab\u00fant varlega og hv\u00edslu\u00f0um varlega til \u00feeirra vandam\u00e1l okkar. Okkur til mikillar fur\u00f0u reyndust ver\u00f0irnir vera \u00fe\u00e6gilegustu n\u00e1ungar \u00ed heimi og \u00feeir v\u00edsu\u00f0u okkur \u00e1 sendageymsluna, en \u00fear fengum vi\u00f0 \u00feessi eftirs\u00f3ttu ver\u00f0laun: p\u00ednul\u00edtinnn l\u00edmmi\u00f0a sem b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 prenta stafina \u201eL.M.A.\u201c \u00e1. Vi\u00f0 vorum h\u00f3lpnir.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellpadding=\"3\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-05.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-05a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nEin af Wellington sprengjuv\u00e9lunum. \u00de\u00e6r eru st\u00f3rar og a\u00f0 sj\u00e1 fimm svona flj\u00faga saman er \u00f3gleymanlegt.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00dea\u00f0 v\u00e6ri allt of langt m\u00e1l og allt of lei\u00f0inlegt a\u00f0 lista \u00f6ll \u00feau m\u00f3del sem vi\u00f0 s\u00fam, svo \u00e9g \u00e6tla bara a\u00f0 nefna nokkur sem voru s\u00e9rlega \u00e1hugaver\u00f0..<\/p>\n<p>H\u00e1lf skala Fokker DR1 m\u00f3deli\u00f0 sem Dave Horton var me\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera eitt st\u00e6rsta flugm\u00f3del sem hefur flogi\u00f0. Hann l\u00edtur ferlega vel \u00fat \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, efsti v\u00e6ngurinn n\u00e6r me\u00f0almanni \u00ed \u00f6x. Hann er ekki m\u00e1la\u00f0ur \u00ed \u00feessum venjulega Rau\u00f0a Bar\u00f3n lit sem vir\u00f0ist vera \u00e1 \u00f6llum \u00fer\u00ed\u00feekjum, heldur \u00ed bl\u00f6ndu a\u00f0 \u00fdmsum \u00e1hugaver\u00f0um litum. Hann flaug tignarlega, en eins og svo m\u00f6rg m\u00f3del af flugv\u00e9lum fr\u00e1 fyrri heimsstyrj\u00f6ldinni, \u00fe\u00e1 vildi \u00fea\u00f0 ekki snrta j\u00f6r\u00f0ina aftur. Skri\u00f0\u00feunginn \u00ed efsta v\u00e6ngnum kemur \u00ed veg fyrir a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 lenda nema r\u00falla \u00e1 baki\u00f0. Vi\u00f0 t\u00f3kum l\u00edka eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 m\u00f3delinu var stafsetningarvilla: \u00e1 einu lokinu ofantil \u00e1 m\u00f3delinu st\u00f3\u00f0 \u201e\u00d6il\u201c \u00ed sta\u00f0 \u201e\u00d6l\u201c, sem er \u00fe\u00fdska og \u00fe\u00fd\u00f0ir ol\u00eda.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-07.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-07a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\n<a href=\"myndir\/part4-06.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-06a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/> <\/a>Vulcan sprengjuv\u00e9lin er st\u00f3r, eins og s\u00e9st \u00feegar mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 Gu\u00f0mund. Rosalega flott s\u00e1nd \u00feegar h\u00fan flaug.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Hinum megin vi\u00f0 okkar m\u00f3del voru tv\u00ed\u00feekjurnar hans Ian Turney-Whites, Nieuport 28 og Bulldog. \u00deetta er gaur sem kann a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a og flj\u00faga flugm\u00f3delum.<\/p>\n<p>A\u00f0 sj\u00e1 flokk a\u00f0 Wellington sprengjuv\u00e9lum flj\u00faga saman var afskaplega gaman. \u00deessi m\u00f3del, sem flest eru sm\u00ed\u00f0u af Ghost Squadron h\u00f3pnum, eru risast\u00f3r og a\u00f0 sj\u00e1 \u00feau flj\u00faga \u00ed \u00fe\u00e9ttri fylkingu nokkra sentimetra fr\u00e1 flugbrautinni er nokku\u00f0 sem ma\u00f0ur gleymir ekki \u00ed br\u00e1\u00f0. \u00c1 sunnudeginum flugu nokkrar B17 og Junkers me\u00f0 \u00feeim \u00ed lokaatri\u00f0i flugkomunnar.<\/p>\n<p>Vulcan spregjuv\u00e9lin var l\u00edka svakaleg. Ma\u00f0ur hreyf\u00f0i sig ekki \u00e1 me\u00f0an h\u00fan flaug. \u00dea\u00f0 voru d\u00e1l\u00edtil vonbrig\u00f0i a\u00f0 Victor sprengjuv\u00e9lin kom ekki og a\u00f0 Valiant sprengjuv\u00e9lin flaug ekki. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u00e1hrifamiki\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 allar V-sprengjuv\u00e9larnar flj\u00faga saman.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-08.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-08a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nB52 er st\u00f3rt m\u00f3del, en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur var ekki h\u00e6gt a\u00f0 flj\u00faga henni. Eftir \u00fev\u00ed sem m\u00f3delin ver\u00f0a fl\u00f3knari, \u00fev\u00ed fleira getur<br \/>\nbila\u00f0.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Og svo kom B52 sprengjuv\u00e9lin. Vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 lesa um \u00feetta m\u00f3del \u00ed m\u00f3delt\u00edmaritum og h\u00f6f\u00f0um heyrt s\u00f6gur af \u00fev\u00ed, en st\u00e6r\u00f0in kom samt \u00e1 \u00f3vart. \u00de\u00b4vi mi\u00f0ur fengum vi\u00f0 ekki a\u00f0 sj\u00e1 hana gera meira en bara aka hratt ni\u00f0ur flugbrautina, vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 komu upp einhver st\u00fdringavandam\u00e1l og flugtak misf\u00f3rst.<\/p>\n<p>BOAC Comet m\u00f3deli\u00f0, sem Steve Rickett flaug var enn eitt svakam\u00f3deli\u00f0. Hvernig hafa \u00feessir menn allan \u00feennan t\u00edma og fj\u00e1rmagn til a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a \u00feessar rosalegu flugv\u00e9lar? \u00deegar Cometinn lyftist og f\u00f3r a\u00f0 fl\u00faga, \u00fe\u00e1 var hann ekki lengur m\u00f3del. \u00dea\u00f0 var algj\u00f6rlega engin lei\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 mun \u00e1 m\u00f3delinu og flugv\u00e9l \u00ed fullri st\u00e6r\u00f0. Svona \u00e1 skalaflug a\u00f0 vera.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-09.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-09a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nHmm. \u00dea\u00f0 \u00fearf ekki m\u00f6rg or\u00f0 um svona m\u00f3del.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00cdslenska li\u00f0i\u00f0 flaug einu sinni. Steve Holland flaug DC3 m\u00f3dleinu. \u00c1 me\u00f0an hann flaug sag\u00f0i Ted Alllison s\u00f6gu flugv\u00e9larinnar \u00ed h\u00e1talarakerfi\u00f0. Flugi\u00f0 t\u00f3kst afar vel, nema a\u00f0 \u00feegar Steve lenti \u00fev\u00ed \u00feoldi anna\u00f0 hj\u00f3lastelli\u00f0 ekki hli\u00f0arvindinn og brotna\u00f0i. Ekkert m\u00e1l, vi\u00f0 g\u00e1tum lagf\u00e6rt \u00fea\u00f0.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a onmouseover=\"MM_swapImage('regn','','..\/..\/cosford_04\/myndir\/part4-10b.jpg',1)\" onmouseout=\"MM_swapImgRestore()\" href=\"myndir\/part4-10.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" id=\"regn\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-10.jpg\" width=\"252\" height=\"189\" name=\"regn\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nRigning \u2013 og b\u00fai a\u00f0 brei\u00f0a yfir m\u00f3delin. Ef vel er a\u00f0 g\u00e1\u00f0, \u00fe\u00e1 m\u00e1 sj\u00e1 Jakob f\u00f3rna s\u00e9r undir seglinu.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>RIGNING! R\u00e9tt fyrir ellefu f\u00f3r a\u00f0 rigna. Og engin sm\u00e1 rigning. Allt var\u00f0 gegnumblautt \u00e1 stundinni. Sem betur fer haf\u00f0i Steve Holland veri\u00f0 n\u00f3gu skynsamur a\u00f0 hafa m\u00e9\u00f0 s\u00e9r segl sem h\u00e6gt var a\u00f0 brei\u00f0a yfir m\u00f3delin. Og jafnvel yfirbrei\u00f0slurnar eru st\u00f3rar \u00ed Englandi, \u00fev\u00ed eftir a\u00f0 hafa ra\u00f0a m\u00f3delunum \u00fe\u00e9tt saman \u00fe\u00e1 g\u00e1tum vi\u00f0 ekki einasta breitt yfir \u00f6ll \u00edslensku m\u00f3delin heldur ll\u00edka Zlininn hans Steves og 1\/3 skala Texaninn hans Ted Allisons. Allt sem ekki skemmdist vi\u00f0 a\u00f0 blotna var s\u00ed\u00f0an nota\u00f0 til a\u00f0 halda seglinu ni\u00f0ri. En eitt horni\u00f0 virtist \u00e6tla a\u00f0 lyftast upp, svo Jakob t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 redda \u00fev\u00ed me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skr\u00ed\u00f0a undir og vefja sig inn \u00ed segli\u00f0. \u00dear l\u00e1 hann \u00fear til stytti upp. Hv\u00edl\u00edk f\u00f3rn! Sem betur fer stytti upp eftir u.\u00fe.b. 45 m\u00edn\u00fatur og h\u00e6gt var a\u00f0 byrja a\u00f0 flj\u00faga aftur.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part4-11.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part4-11a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nMrs Allison var eina konan sem flaug \u00e1 Cosford \u00feetta \u00e1ri\u00f0. \u00c1 v\u00e6ngnum stendur \u201eBeware, Female Pilot!\u201c.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<h2>Sunnudagur :: s\u00ed\u00f0asti dagurinn, en ekki s\u00e1 s\u00edsti.<\/h2>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part5-01.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-01a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nVi\u00f0ger\u00f0ir \u00e1 hj\u00f3lastellinu<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Sunnudagurinn byrja\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 ger\u00f0um vi\u00f0 hj\u00f3lastelli\u00f0 \u00e1 Douglasinum. Smabland af rigningu, hli\u00f0arvindi og fyrri skemmdum haf\u00f0i gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 hj\u00f3lastelli\u00f0 losna\u00f0i. Steve sag\u00f0i okkur hvernig vi\u00f0 yr\u00f0um a\u00f0 gera vi\u00f0 og Skj\u00f6ldur f\u00f3r og keypti balsavi\u00f0 og l\u00edm. \u00deegar hann kom aftur settum vi\u00f0 tvo trekantlista undir stellfestingarnar og heltum tonnataki \u00e1 m\u00f3torh\u00fasi\u00f0, sem var byrja\u00f0 a\u00f0 spennast \u00ed sundur vegna bleytunnar. Eftir a\u00f0 vi\u00f0ger\u00f0in var b\u00fain sko\u00f0a\u00f0i Steve handarverk okkar og d\u00e6mdi v\u00e9lina flugh\u00e6fa.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part5-02.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-02a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nH\u00e1lf skala Pitts a\u00f0 hverfa \u00ed reyk.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00c1 me\u00f0an haf\u00f0i flug haldi\u00f0 \u00e1fram og n\u00fa voru enn fleiri \u00e1hugaver\u00f0 m\u00f3del \u00e1 lofti. N\u00fa flugu nokkur listflugsm\u00f3del, en \u00fea\u00f0 sem var einna \u00e1hugaver\u00f0ast af \u00feeim var h\u00e1lf skala Pitts sem j\u00f3s \u00far s\u00e9r svo miklum reyk \u00ed propphangi einu sinni, a\u00f0 h\u00fan hreinlega hvarf og flugma\u00f0urinn var\u00f0 a\u00f0 lyfta henni upp \u00far reyknum til a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 hann var a\u00f0 gera. \u00dea\u00f0 var enn\u00fe\u00e1 \u00fe\u00f3nokkur hli\u00f0arvindur og hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 erfitt fyrir nokkur m\u00f3del a\u00f0 taka \u00e1 loft og lenda, s\u00e9rstaklega l\u00e9ttari v\u00e9lar \u00far fyrra str\u00ed\u00f0i. \u00dea\u00f0 var athyglisvert a\u00f0 sj\u00e1 hvernig flugmennirnir bj\u00f6rgu\u00f0u m\u00f3delum s\u00ednum aftur og aftur, flug eftir flug. Til \u00feess \u00fearf verulega f\u00e6rni.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part5-03.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-03a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nSvifflugum\u00f3del af m\u00f3torflugv\u00e9l lendir me\u00f0 miklum h\u00e1va\u00f0a. \u00dea\u00f0 eiga a\u00f0 vera \u00ferj\u00fa m\u00f3torh\u00fas \u00e1 v\u00e6ngnum.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Eitt s\u00e9rlega \u00e1hugavert m\u00f3del var m\u00f3torlaus \u00fatg\u00e1fa af r\u00fassneskri flutningaflugv\u00e9l. M\u00f3del af Agwagon flugv\u00e9l dr\u00f3 hana \u00ed lofti\u00f0 og s\u00ed\u00f0an sveif h\u00fan ni\u00f0ur aftur. \u00c1 me\u00f0an veri\u00f0 var a\u00f0 draga hana \u00ed lofti, \u00fe\u00e1 datt eitt gerfi-m\u00f3torh\u00fasi\u00f0 af, en fannst seinna og einn \u00e1horfandinn kom me\u00f0 \u00fea\u00f0 til baka. \u00deegar svifflugan lenti aftur, \u00fe\u00e1 l\u00e9t flugma\u00f0urinn hana setjast \u00e1 malbiki\u00f0, frekar en grasi\u00f0 og \u00fe\u00e1 heyr\u00f0ist eitthvert \u00fea\u00f0 agalegasta skraphlj\u00f3\u00f0 sem hugsast getur.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part5-04.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-04a.jpg\" width=\"250\" height=\"125\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nC17 Globemaster. St\u00f3rt m\u00f3del og ofbo\u00f0slega vel sm\u00ed\u00f0a\u00f0. \u00dea\u00f0 er eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00feetta m\u00f3del &#8230;<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Og svo kom C17 Globemaster. Vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 sj\u00e1 sm\u00e1 b\u00fata \u00far sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6tti \u00e1 Discovery Channel sem einn vinur okkar haf\u00f0i teki\u00f0 upp, \u00fear sem veri\u00f0 var a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a C17 m\u00f3deli\u00f0, en enginn okkar haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 alla \u00fe\u00e6ttina. \u00dea\u00f0 var heillandi a\u00f0 sj\u00e1 \u00feegar veri\u00f0 var a\u00f0 gera m\u00f3deli\u00f0 tilb\u00fai\u00f0. Var \u00fea\u00f0 \u00ed raun svona st\u00f3rt? Myndi \u00fea\u00f0 geta flogi\u00f0? Myndi Land Roverinn detta aftur\u00far \u00fev\u00ed? Spurningarnar voru endalausar og Colin Straus og hans li\u00f0 svara\u00f0i \u00feeim \u00f6llum \u00e1 sama \u00fe\u00e6gilega og \u00feolim\u00f3\u00f0a h\u00e1ttinn og vi\u00f0 vorum farnir a\u00f0 b\u00faast vi\u00f0 af enskum flugm\u00f3delm\u00f6nnum.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a onmouseover=\"MM_swapImage('c171','','myndir\/part5-05b.jpg',1)\" onmouseout=\"MM_swapImgRestore()\" href=\"myndir\/part5-05.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" id=\"c171\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-05b.jpg\" width=\"250\" height=\"124\" name=\"c171\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nLand Roverinn dettur, en engin fallhl\u00edf. \u00dabbs!<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Og C17 v\u00e9lin flaug. Og aftur\u00far henni st\u00f6kk fallhl\u00edfarma\u00f0ur sem sveif r\u00f3lega undan vindi, langt \u00ed burtu. Einhver \u00e1tti langa g\u00f6ngu \u00ed v\u00e6ndum. N\u00e6st \u00e1ttum vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 1\/9 skala Land Rover \u00e1 s\u00e9rsm\u00ed\u00f0u\u00f0um palli detta aftur \u00far v\u00e9linni og sv\u00edfa ni\u00f0ur \u00ed fallhl\u00edf. B\u00edllinn kom aftur \u00far v\u00e9linni, en fallhl\u00edfin opna\u00f0ist ekki. B\u00edllinn datt eins og steinn og sundra\u00f0ist vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 brautinni.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 fengum l\u00edka a\u00f0 sj\u00e1 fr\u00e6ga m\u00f3delmenn. Jakob f\u00e9kk a\u00f0 hitta einn mann sem hann hefur haldi\u00f0 upp\u00e1 lengi, David Boddington, m\u00f3delsmi\u00f0 og h\u00f6nnu\u00f0 til margra \u00e1ra. Jakob haf\u00f0i byggt AVRO 504 eftir teikningum Boddingtons og var \u00ed sj\u00f6unda himni a\u00f0 hitta manninn sj\u00e1lfan.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"left\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"myndir\/part5-06.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-06a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nRichard Rawle sko\u00f0ar skemmdirnar \u00e1 B25 m\u00f3dleinu. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 gera vi\u00f0.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>Allt \u00ed ein var kominn t\u00edmi til a\u00f0 flj\u00faga B25 m\u00f3delinu hans Skjaldar. Vi\u00f0 b\u00e1rum \u00fea\u00f0 \u00ed startboxi\u00f0 og Steve sneri m\u00f3torana \u00ed gang. Vinstri m\u00f3torinn var eitthva\u00f0 tregur a\u00f0 koma s\u00e9r af sta\u00f0, en n\u00e1\u00f0i loks sn\u00faningi og vi\u00f0 h\u00e9ldum a\u00f0 m\u00f3deli\u00f0 v\u00e6ri tilb\u00fai\u00f0. Steve gaf inn og flugv\u00e9lin rann ni\u00f0ur eftir brautinni. Um lei\u00f0 og h\u00fan lyfti s\u00e9r, h\u00e6g\u00f0i vinstri m\u00f3torinn \u00e1 s\u00e9r og samvinna hli\u00f0arvinds fr\u00e1 h\u00e6gri og h\u00e6gri m\u00f3tors \u00e1 fullu ur\u00f0u til \u00feess a\u00f0 B25 v\u00e9lin snerist sn\u00f6gglega til vinstri og skall aftur ni\u00f0ur \u00e1 brautina. H\u00fan skemmdist d\u00e1l\u00edti\u00f0, en \u00fe\u00f3 ekki svo miki\u00f0 a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 gera vi\u00f0 hana, svo h\u00fan fl\u00fdgur aftur einhvern daginn.<\/p>\n<p>Richard Rawle var b\u00fainn a\u00f0 gera \u00fdmsar breytingar \u00e1 v\u00e9larr\u00fdmi Mustangsins hans Skjaldar kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1\u00f0ur og n\u00fa var hann tilb\u00fainn \u00ed flug. \u00dea\u00f0 gekk mj\u00f6g vel og \u00e1horfendur t\u00f3ku honum mj\u00f6g vel.<\/p>\n<table style=\"width: 100px;\" border=\"0\" cellspacing=\"5\" cellpadding=\"5\" align=\"right\">\n<tbody>\n<tr>\n<td height=\"252\"><a href=\"myndir\/part5-07.jpg\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" id=\"c17\" alt=\"Cosford 2004\" src=\"sidumyndir\/cosford2004\/part5-07a.jpg\" width=\"250\" height=\"188\" border=\"1\" \/><\/a><br \/>\nMustanginn hans Skjaldar er engin sm\u00e1sm\u00ed\u00f0i.<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<h5><\/h5>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Grein skrifu\u00f0 fyrir Large Model Association Journal og \u00fe\u00fddd \u00e1 \u00edslensku fyrir vef FMF \u201eAf hverju hefur \u00fe\u00fa ekki m\u00f3del me\u00f0 \u00fe\u00e9r n\u00e6st?\u201c Skj\u00f6ldur Sigur\u00f0sson, einn besti m\u00f3delsmi\u00f0ur \u00cdslands hefur fari\u00f0 til Cosford \u00e1 Englandi \u00ed m\u00f6rg \u00e1r til a\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/www.flugmodel.is\/?page_id=20\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":7,"menu_order":10,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/20"}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=20"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/20\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1719,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/20\/revisions\/1719"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/7"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=20"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}