{"id":15,"date":"2007-02-22T10:01:11","date_gmt":"2007-02-22T10:01:11","guid":{"rendered":"http:\/\/new.flugmodel.is\/?page_id=15"},"modified":"2013-06-23T22:33:38","modified_gmt":"2013-06-23T22:33:38","slug":"pcm-og-ppm","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/www.flugmodel.is\/?page_id=15","title":{"rendered":"PCM og PPM"},"content":{"rendered":"<p>H\u00f6fundur: Dave Edwards af s\u00ed\u00f0u hans Dave&#8217;s RC Flight : <a href=\"http:\/\/davesrcflight\/mysite.wanadoo-members.co.uk\" target=\"_blank\">http:\/\/davesrcflight\/mysite.wanadoo-members.co.uk<\/a><br \/>\n  &THORN;\u00fdtt me\u00f0   leyfi h\u00f6fundar: Gu\u00f0j\u00f3n \u00d3lafsson <\/p>\n<p>\u00cd \u00feessari grein ver\u00f0a fyrirb\u00e6rin PPM (enska Pulse Position Modulation) og PCM   (e. Pulse Code Modulation) \u00fatsk\u00fdr\u00f0, sagt fr\u00e1 hvernig \u00feau virka og gefnar   hugmyndir um kosti og galla \u00feeirra. Einnig er l\u00edtillega tala\u00f0 um PCM \u00f6ryggi (e.   fail-safe) og hvernig \u00fea\u00f0 virkar.<\/p>\n<p>Verki\u00f0 sem fjarst\u00fdrigr\u00e6jurnar vinna er a\u00f0 sko\u00f0a stanslaust \u00ed hva\u00f0a st\u00f6\u00f0u   st\u00fdripinnarnir eru og yfirf\u00e6ra \u00fe\u00e1 st\u00f6\u00f0u \u00e1 st\u00fdrisarmana \u00e1 serv\u00f3unum. &THORN;a\u00f0 er   vanalegt a\u00f0 hafa fr\u00e1 tveim upp \u00ed \u00e1tta r\u00e1sir \u00ed notkun \u00ed einu, \u00feannig a\u00f0 t\u00e6ki\u00f0   \u00fearf a\u00f0 samstilla st\u00f6\u00f0u margra pinna og takka vi\u00f0 marga serv\u00f3arma. <\/p>\n<p>N\u00e6stum \u00fev\u00ed \u00f6ll fjarst\u00fdrit\u00e6ki sem notu\u00f0 eru fyrir flugv\u00e9lar nota t\u00ed\u00f0nim\u00f3tun   (FM e. Frequency Modulation) og me\u00f0 henni er sett upp ein st\u00f6k \u201e\u00fatvarpstenging\u201c   \u00e1 milli fjarst\u00fdringarinnar (TX) og m\u00f3ttakarans (RX). \u00d6nnur ger\u00f0 m\u00f3tunar, PPM e\u00f0a   PCM er s\u00ed\u00f0an notu\u00f0 til a\u00f0 bera \u201est\u00fdrir\u00e1sirnar\u201c \u00e1 \u00fatvarpstengingunni, ein r\u00e1s   fyrir hvert serv\u00f3. PPM e\u00f0a PCM er nota\u00f0 til a\u00f0 sam\u00fe\u00e6tta (multiplex)   st\u00fdrir\u00e1sirnar \u00ed eina \u00fatvarpsr\u00e1s. Hver framlei\u00f0andi fjarst\u00fdringa notar s\u00edna eigin   a\u00f0fer\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa til PCM og l\u00fdsingin h\u00e9r \u00e1 eftir gefur grunn hugmynd a\u00f0 \u00fev\u00ed   hvernig \u00feetta virkar.<\/p>\n<p>&THORN;a\u00f0, hvernig st\u00fdrir\u00e1sir eru sam\u00fe\u00e6ttar, er nokkurn vegin eins \u00ed b\u00e6\u00f0i PCM og   PPM. Sta\u00f0setning pinnans fyrir r\u00e1s 1 \u00ed fjarst\u00fdringunni er lesin og h\u00fan send til   m\u00f3ttakarans. Strax \u00e1 eftir er sta\u00f0setning pinna 2 lesin og \u00fe\u00e6r uppl\u00fdsingar   sendar. &THORN;etta er endurteki\u00f0 me\u00f0 allar r\u00e1sirnar, hverja \u00e1 eftir annarri. &THORN;etta   gerist nokku\u00f0 \u00f6rt, svo a\u00f0 svo vir\u00f0ist sem serv\u00f3in viti strax ef einn pinni e\u00f0a   fleiri hafa veri\u00f0 hreyf\u00f0ir, en \u00ed raun eru \u00feessar uppl\u00fdsingar ekki sendar nema 25   til 50 sinnum \u00e1 sek\u00fandu (eftir framlei\u00f0anda og g\u00e6\u00f0um t\u00e6kja). <\/p>\n<table cellspacing=\"3\" cellpadding=\"5\" align=\"right\" border=\"0\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" height=\"165\" src=\"sidumyndir\/ppmogpcm\/ppm.gif\" width=\"300\" border=\"0\" \/><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>A\u00f0fer\u00f0in til a\u00f0 senda uppl\u00fdsingar um sta\u00f0setningu pinnans er me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0   breyta lengd p\u00falsins. P\u00fals me\u00f0 lengdina 1,5ms (millisek\u00fanda) mi\u00f0jar serv\u00f3i\u00f0. Ef   p\u00falsinn er styttur \u00ed 1,0ms, \u00fe\u00e1 fer serv\u00f3i\u00f0 alla lei\u00f0 \u00ed a\u00f0ra \u00e1ttina en ef hann er   lengdur \u00ed 2,0ms, \u00fe\u00e1 fer \u00fea\u00f0 alla lei\u00f0 \u00ed hina \u00e1ttina. A\u00f0rar sta\u00f0setningar falla   \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00feetta bil. Einhver munur er \u00e1 bilum \u00e1 milli framlei\u00f0anda serv\u00f3a, en hann er   svo l\u00edtill a\u00f0 \u00fea\u00f0 skipti ekki m\u00e1li. <\/p>\n<p>Sko\u00f0um \u00feetta aftur. Sendirinn les sta\u00f0setningu pinna 1 og p\u00fals af r\u00e9ttri   lengd er b\u00fainn til, sem segir serv\u00f3inu hvert \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 fara. Strax \u00e1 eftir er   sta\u00f0setning pinna 2 lesin og annar p\u00fals af vi\u00f0eigandi lengd b\u00fainn til og svona   gengur \u00fea\u00f0 fyrir allar r\u00e1sir st\u00fdringarinnar.<\/p>\n<p>N\u00fa komum vi\u00f0 a\u00f0 muninum \u00e1 PPM og PCM. \u00cd PPM er hverjum p\u00fals bara skeytt aftan   vi\u00f0 \u00feann n\u00e6sta \u00e1 undan. &THORN;etta \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 \u00ed tveggja r\u00e1sa st\u00fdringu eru tveir p\u00falsar   af vi\u00f0eigandi lengd sendir til m\u00f3ttakarans, s\u00ed\u00f0an kemur langt bil og svo aftur   tveir p\u00falsar. \u00cd 10 r\u00e1sa fjarst\u00fdringu eru sendir 10 p\u00falsar og s\u00ed\u00f0an stutt bil og   svo 10 p\u00falsar aftur. &THORN;essi r\u00f6\u00f0 p\u00falsa og bila , e\u00f0a \u201eramma\u201c er send m\u00f6rgum sinnum   \u00e1 sek\u00fandu. M\u00f3ttakarinn ver\u00f0ur a\u00f0 finna \u00fat hva\u00f0a p\u00fals fer \u00e1 hva\u00f0a serv\u00f3 og \u00fea\u00f0   getur hann gert me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir bilinu. Fyrsti p\u00falsinn eftir bili\u00f0 er   fyrir serv\u00f3 1, n\u00e6sti p\u00fals fyrir serv\u00f3 2 o.s.frv. &THORN;ess vegna er \u00feetta kalla\u00f0 \u00e1   ensku Pulse Position Modulation, e\u00f0a m\u00f3tum me\u00f0 sta\u00f0setningu p\u00falsa. Lengd p\u00falsins   segir serv\u00f3inu \u00ed hva\u00f0a st\u00f6\u00f0u \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 fara. <\/p>\n<table cellspacing=\"3\" cellpadding=\"2\" align=\"right\" border=\"0\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" height=\"165\" src=\"sidumyndir\/ppmogpcm\/pcm.gif\" width=\"300\" border=\"0\" \/><\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00cd PCM st\u00fdringu gerist anna\u00f0. &THORN;egar fjarst\u00fdringin les sta\u00f0setningu pinnanna,   \u00fe\u00e1 b\u00fdr h\u00fan ekki til p\u00falsa af mismunandi lengd fyrir serv\u00f3in, heldur b\u00fdr h\u00fan   oftast til 10 bita k\u00f3\u00f0a (fer eftir framlei\u00f0endum og g\u00e6\u00f0um t\u00e6kja), \u00fe.e. 10 bita   b\u00e6ti uppl\u00fdsinga \u00e1 forminu 1 og 0. Hver pinni er lesinn \u00ed r\u00f6\u00f0 og vi\u00f0eigandi 10   bita k\u00f3\u00f0i fyrir pinnana b\u00fainn til. S\u00ed\u00f0an eru \u00feessir k\u00f3\u00f0ar settir saman \u00ed ramma   og ramminn sendur til m\u00f3ttakarans m\u00f6rgum sinnum \u00e1 sek\u00fandu. M\u00f3ttakarinn \u00fearf n\u00fa   a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hva\u00f0a 10 bita k\u00f3\u00f0i er fyrir serv\u00f3 1, lesa hann og b\u00faa til p\u00fals af   vi\u00f0eigandi lengd fyrir serv\u00f3i\u00f0. Hann gerir \u00feetta fyrir hverja einustu r\u00e1s. <\/p>\n<p>Hvers vegna gera \u00feetta svona fl\u00f3ki\u00f0? Vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn vir\u00f0ist sem vi\u00f0 h\u00f6fum   gert \u00feetta bara verra, vegna \u00feess a\u00f0 me\u00f0 10 bitum eru bara 1024 m\u00f6guleikar og   \u00fear me\u00f0 bara 1024 m\u00f6gulegar sta\u00f0setningar fyrir serv\u00f3i\u00f0. Me\u00f0 PPM eru fr\u00e6\u00f0ilega   til \u00f3endanlega margar sta\u00f0setningar fyrir serv\u00f3i\u00f0. Veiki hlekkurinn \u00e1 milli   pinnanna \u00e1 fjarst\u00fdringunni og serv\u00f3anna \u00ed flugv\u00e9linni er \u00fatvarpsbylgjan. Me\u00f0 PPM   er \u00fatvarpsbylgjan hli\u00f0r\u00e6n (e. analogue), en me\u00f0 PCM er h\u00fan stafr\u00e6n (e. digital).   Eins og \u00ed flestum tilfellum \u00fear sem stafr\u00e6n g\u00f6gn eru notu\u00f0, \u00fe\u00e1 aukast g\u00e6\u00f0in. Me\u00f0   PPM, \u00fe\u00e1 \u00fearf m\u00f3ttakarinn a\u00f0 m\u00e6la lengd p\u00falsanna, \u00fe.e. hven\u00e6r p\u00fals byrjar og   hven\u00e6r hann endar. Ef merki\u00f0 fr\u00e1 fjarst\u00fdringunni er gott og sterkt, \u00fe\u00e1 gerir   hann \u00feetta n\u00e1kv\u00e6mlega og \u00e1n mikilla vandkv\u00e6\u00f0a, en ef merki\u00f0 er veikt e\u00f0a \u00fea\u00f0   koma inn truflanir, \u00fe\u00e1 getur hann \u00fea\u00f0 ekki. Vi\u00f0 h\u00f6fum allir s\u00e9\u00f0 titring \u00ed   serv\u00f3um sem koma vegna \u00feess a\u00f0 m\u00f3ttakarinn getur ekki reikna\u00f0 \u00fat upphaf og endi   p\u00falsanna n\u00f3gu vel. Me\u00f0 PCM, \u00fearf lesarinn \u00ed m\u00f3ttakaranum ekki a\u00f0 finna neitt   nema r\u00f6\u00f0 1 og 0, \u00fe.e. P\u00fals e\u00f0a ekki og hann veit n\u00e1kv\u00e6mlega (e\u00f0a svo til) hven\u00e6r   hann \u00e1 a\u00f0 leita \u00feeirra. &THORN;egar hann er ekki a\u00f0 leita a\u00f0 p\u00fals, \u00fe\u00e1 skiptir ekki   m\u00e1li hva\u00f0 er a\u00f0 gerast me\u00f0 merki\u00f0 fr\u00e1 sendinum. Me\u00f0 PCM getur m\u00f3ttakarinn lesi\u00f0   \u00far uppl\u00fdsingunum me\u00f0 mikilli n\u00e1kv\u00e6mni \u00fe\u00f3 verulegar truflanir s\u00e9u \u00ed umhverfinu.   Lesarinn \u00fearf \u00fe\u00f3 a\u00f0 geta s\u00e9\u00f0 hven\u00e6r uppl\u00fdsingarnar sem hann f\u00e6r eru gildar e\u00f0a   ekki. &THORN;etta er gert me\u00f0 svok\u00f6llu\u00f0um rammavart\u00f6lum (e. frame check sums) Einf\u00f6ld   a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 gera \u00feetta er a\u00f0 sendirinn telur heildarfj\u00f6lda t\u00f6lunnar 1 \u00ed   hverjum ramma og sendir \u00feessa t\u00f6lu til m\u00f3ttakarans, sem aftur telur fj\u00f6lda   t\u00f6lunnar 1. Ef t\u00f6lurnar tv\u00e6r eru \u00fe\u00e6r s\u00f6mu, \u00fe\u00e1 er ekki l\u00edklegt a\u00f0 um villu s\u00e9 a\u00f0   r\u00e6\u00f0a. &THORN;a\u00f0 eru til betri a\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 gera \u00feetta sem gefa n\u00e1kv\u00e6mari   ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur, en hugmyndin er s\u00fa sama. M\u00f3ttakarinn hunsar einstaka ramma me\u00f0   ranga vart\u00f6lu og notar bara aftur s\u00ed\u00f0asta heila ramma sem hann f\u00e9kk.<\/p>\n<table cellspacing=\"3\" cellpadding=\"5\" align=\"right\" border=\"0\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" height=\"301\" src=\"sidumyndir\/ppmogpcm\/6exa.jpg\" width=\"250\" border=\"0\" \/><\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Futaba 6EXA \u2013 frr\u00e1b\u00e6r st\u00fdring fyrir   byrjendur<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>&THORN;annig gefur PCM mun \u00f6ruggari tengingu \u00e1 milli fjarst\u00fdringar og m\u00f3ttakara og   \u00fatilokar allar litlu truflanirnar sem vi\u00f0 getum fengi\u00f0 me\u00f0 PPM. &THORN;a\u00f0 er aftur \u00e1   m\u00f3ti sm\u00e1 vandam\u00e1l \u2013 PCM gefur fullkomna stj\u00f3rn \u00fe\u00f3 a\u00f0 m\u00f3ttakarinn s\u00e9 a\u00f0 f\u00e1 frekar   dauft merki fr\u00e1 sendinum, en \u00fea\u00f0 eru takm\u00f6rk fyrir \u00feessu og handan \u00feeirra hefur   ma\u00f0ur enga stj\u00f3rn. Stj\u00f3rnin er fullkomin e\u00f0a engin og \u00fea\u00f0 koma engir kippir e\u00f0a   hopp sem vara mann vi\u00f0. Fjarl\u00e6g\u00f0in \u00e6tti a\u00f0 vera jafn mikil og \u00feegar ma\u00f0ur notar   PPM, en \u00feegar fari\u00f0 er \u00fat fyrir hana, \u00fe\u00e1 er stj\u00f3rnin horfin \u00e1n fyrirvara! Til a\u00f0   gir\u00f0a fyrir \u00feennan galla var \u00f6ryggi (e. fail-safe) b\u00fai\u00f0 til og er selt me\u00f0 sem   aukab\u00fana\u00f0ur, en \u00e9g hef ekki tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 sl\u00edkt \u00f6ryggi virki \u00e1 neina fjarst\u00fdr\u00f0a   flugv\u00e9l. Ef \u00fe\u00fa tapar sendingu \u00e1 milli fjarst\u00fdringar og m\u00f3ttakara, \u00fe\u00e1 er engin   lei\u00f0 til a\u00f0 flugv\u00e9lin lendi sj\u00e1lf \u00f6rugglega. Ekkert flugm\u00f3del er \u00f6ruggt fyrr en   \u00fea\u00f0 er hreyfingarlaust \u00e1 j\u00f6r\u00f0u ni\u00f0ri. A\u00f0 \u00feessu s\u00f6g\u00f0u, \u00fe\u00e1 tel \u00e9g samt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9   gott a\u00f0 hafa PCM \u00f6ryggi, en nafni\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed hlj\u00f3mar betur en \u00fea\u00f0 virkar \u2013 ekki   b\u00faast vi\u00f0 of miklu af \u00fev\u00ed. <\/p>\n<p>(&THORN;a\u00f0 m\u00e1 taka fram h\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0andinn hefur alltaf liti\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 \u00f6ryggi e\u00f0a   \u201efail-safe\u201c s\u00e9 ekki hanna\u00f0 til a\u00f0 auka \u00f6ryggi m\u00f3delsins e\u00f0a bjarga \u00fev\u00ed fr\u00e1   skemmdum, heldur til a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir e\u00f0a l\u00e1gmarka eins og kostur er \u00fe\u00e6r   skemmdir og\/e\u00f0a mei\u00f0sl sem stj\u00f3rnlaust m\u00f3del getur valdi\u00f0.)<\/p>\n<h3>PCM \u00d6ryggi.<\/h3>\n<p>&THORN;eir sem hafa PCM st\u00fdringu geta stillt inn fyrirfram \u00e1kve\u00f0nar sta\u00f0setningar   fyrir hvert serv\u00f3 sem \u00feau eiga a\u00f0 fara \u00ed ef sambandi\u00f0 \u00e1 milli fjarst\u00fdringar og   m\u00f3ttakara fellur ni\u00f0ur vegna \u00feess a\u00f0 merki\u00f0 er of dauft e\u00f0a vegna truflana.   &THORN;etta er venjulega gert \u00ed tveim hlutum:<\/p>\n<p>\u00cd fyrsta lagi er SERV\u00d3ST\u00d6&ETH;VUN (e. servo hold), sem fer \u00ed gang um lei\u00f0 og   merki\u00f0 fer a\u00f0 hverfa og gildir \u00ed allt a\u00f0 eina sek\u00fandu (\u00e1 sumum t\u00e6kjum er \u00feetta   stillanlegt) &THORN;etta heldur s\u00ed\u00f0ustu st\u00f6\u00f0u \u00e1 \u00f6llum serv\u00f3um og \u00fatilokar a\u00f0 mestu   allar hreyfingar vegna truflana sem \u00ed flestum tilfellum eru stuttar.<\/p>\n<p>N\u00e6sta \u00d6RYGGI kemur inn \u00feegar merki\u00f0 hefur veri\u00f0 veikt e\u00f0a fjarverandi lengur   en t\u00edminn sem gefinn er fyrir SERV\u00d3ST\u00d6&ETH;VUN og setur \u00f6ll serv\u00f3 \u00ed fyrirfram   \u00e1kve\u00f0nar st\u00f6\u00f0ur sem notandinn hefur stillt inn me\u00f0 fjarst\u00fdringunni. Ef engar   st\u00f6\u00f0ur hafa veri\u00f0 stilltar, \u00fe\u00e1 er venjulega sj\u00e1lfgefi\u00f0 a\u00f0 serv\u00f3 halda \u00feeim   st\u00f6\u00f0um sem \u00feau eru \u00ed, \u00fe.e. halda serv\u00f3st\u00f6\u00f0vun \u00e1fram. Ef inngj\u00f6fin er   undanskilin, \u00fe\u00e1 er \u00feetta l\u00edklega besta a\u00f0ger\u00f0in, en hver og einn ver\u00f0ur a\u00f0 \u00edhuga   vandlega hvernig \u00feetta er nota\u00f0.<\/p>\n<table width=\"285\" border=\"0\" align=\"left\" cellpadding=\"2\" cellspacing=\"5\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" height=\"303\" src=\"sidumyndir\/ppmogpcm\/9c.jpg\" width=\"275\" border=\"0\" \/><\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Futaba 9C ser\u00edan \u2013 magna\u00f0ur sendir me\u00f0 \u00f3t\u00e6mandi   m\u00f6guleika<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p>\u00c1 me\u00f0an \u00e1 SERV\u00d3ST\u00d6&ETH;VUN og \u00d6RYGGI stendur er m\u00f3ttakarinn stanslaust a\u00f0 leita   a\u00f0 merki og um lei\u00f0 og hann f\u00e6r gildan gagnaramma \u00fe\u00e1 eru serv\u00f3in aftur undir   stj\u00f3rn fjarst\u00fdringarinnar. &THORN;annig a\u00f0 ef stuttar truflanir hindra merki\u00f0 \u00e1 milli   fjarst\u00fdringar og m\u00f3ttakara t.d. ef elding sl\u00e6r ni\u00f0ur \u00ed fjarska, \u00fe\u00e1 virkar   SERV\u00d3ST\u00d6&ETH;VUN ekki nema \u00ed brot \u00far sek\u00fandu.<\/p>\n<p>Uppl\u00fdsingarnar fyrir \u00f6ryggis-sta\u00f0setningar serv\u00f3anna eru stanslaust sendar   til m\u00f3ttakarans \u00e1 milli ramma \u00feegar engar a\u00f0rar sendingar eru \u00ed gangi, en vegna   \u00feess a\u00f0 sendingar eru venjulega \u00f6rar og miki\u00f0 a\u00f0 gera, \u00fe\u00e1 geta li\u00f0i\u00f0 nokkrar   m\u00edn\u00fatur fr\u00e1 \u00fev\u00ed kveikt er, a\u00f0 allar \u00f6ryggissta\u00f0setningar eru komnar til   m\u00f3ttakarans. Uppl\u00fdsingar um SERV\u00d3ST\u00d6&ETH;VUN eru aftur \u00e1 m\u00f3ti \u00ed m\u00f3ttakaranum fr\u00e1   upphafi. &THORN;essi t\u00f6f er venjulega ekki vandam\u00e1l ef t\u00edminn fr\u00e1 \u00fev\u00ed ma\u00f0ur kveikir \u00e1   og \u00feanga\u00f0 til ma\u00f0ur tekur \u00e1 loft er tekinn me\u00f0 \u00ed reikninginn. \u00cd Futaba FF9   sendinum er snj\u00f6ll lausn sem virkar \u00feannig a\u00f0 ef ma\u00f0ur kveikir \u00e1 m\u00f3takaranum   fyrst og s\u00ed\u00f0an \u00e1 sendinum, \u00fe\u00e1 sendir hann fyrst af \u00f6llu \u00f6ryggisstillingarnar   fyrstu 10 sek\u00fandurnar. S\u00ed\u00f0an endurstillir hann \u00fe\u00e6r einu sinni \u00e1 hverri m\u00edn\u00fatu.   PCM t\u00e1knmyndin \u00ed efra horninu vinstra megin blikkar og \u00e9g tel \u00fea\u00f0 vera merki um   a\u00f0 \u00f6ryggisramminn hafi veri\u00f0 sendur, \u00fe\u00f3 \u00e9g hafi hvergi fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 sta\u00f0fest.   A\u00f0rar st\u00fdringar hafa hugsanlega svipa\u00f0a eiginleika.<\/p>\n<p>Hver framlei\u00f0andi hefur sj\u00e1lfgefnar stillingar fyrir \u00f6ryggi sinna t\u00e6kja og   \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 notendur skilji n\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0 muni gerast \u00ed m\u00f3delum \u00feeirra   \u00feegar \u00fea\u00f0 fer \u00ed gang. <\/p>\n<table cellspacing=\"3\" cellpadding=\"5\" align=\"right\" border=\"0\">\n<tbody>\n<tr>\n<td><a href=\"http:\/\/www.14mz.com\/features.html\" target=\"_blank\"><img decoding=\"async\" loading=\"lazy\" height=\"369\" src=\"sidumyndir\/ppmogpcm\/futaba-mz14.jpg\" width=\"300\" border=\"0\" \/><\/a><\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Langt \u00e1 undan sinni framt\u00ed\u00f0: Futaba   14-MZ:<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<h3>Kostir PCM.<\/h3>\n<ul>\n<li>Aukin langdr\u00e6gni. Truflanir vegna \u00feess a\u00f0 merki\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 dauft \u00feegar   m\u00f3deli\u00f0 er langt \u00ed burtu e\u00f0a loftneti\u00f0 er \u00ed n\u00fallst\u00f6\u00f0u eru \u00far s\u00f6gunni. <\/li>\n<li>Minni n\u00e6mni vegna truflana eins og eldinga \u00ed fjarska, h\u00e1spennul\u00edna, annarar   notkunar \u00e1 r\u00e1sum fjarst\u00fdringa (bandar\u00edski herinn a\u00f0 tala \u00e1 35MHz), s\u00f3lbletta,   rafsu\u00f0u o.s.frv. <\/li>\n<li>Serv\u00f3in i\u00f0a ekki og ey\u00f0a \u00fear af lei\u00f0andi minna rafmagni og endast betur.   St\u00e9lr\u00f3torserv\u00f3 \u00e1 \u00feyrlum eiga au\u00f0veldara l\u00edf og h\u00e6gt er a\u00f0 hafa aukna virkni \u00e1   g\u00edr\u00f3um. <\/li>\n<li>Vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er m\u00f3ttakarinn sem b\u00fdr til serv\u00f3p\u00falsinn, \u00fe\u00e1 er hann alltaf   hreinn og endurtekinn. &THORN;a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 m\u00f3ttakarinn hefur alltaf stj\u00f3rn \u00e1 serv\u00f3unum   sama hva\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er um merki\u00f0 fr\u00e1 sendinum. <\/li>\n<\/ul>\n<h3>\u00d3kostir PCM.<\/h3>\n<ul>\n<li>Engin a\u00f0v\u00f6run um \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00f3deli\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 fara \u00fat \u00far dr\u00e6gni sendisins.   Langdr\u00e6gni er yfirleitt betri, en PCM getur fali\u00f0 sl\u00e6ma \u00edsetningu m\u00f3ttakarans,   sl\u00e6ma l\u00f6gn e\u00f0a lykkju \u00e1 m\u00f3ttakaraloftneti, illa varinn m\u00f3tor o.s.frv. <\/li>\n<li>Serv\u00f3in skj\u00e1lfa ekki \u00feegar annar hefur kveikt \u00e1 sendi \u00e1 s\u00f6mu r\u00e1s og ma\u00f0ur   getur haft fullkomna stj\u00f3rn \u00e1 me\u00f0an ma\u00f0ur er n\u00e1l\u00e6gt m\u00f3delinu en s\u00ed\u00f0an misst hana   allt \u00ed einu \u00feegar m\u00f3deli\u00f0 fjarl\u00e6gist. <\/li>\n<li>D\u00fdrara. <\/li>\n<li>Ma\u00f0ur er bundinn framlei\u00f0anda sendisins \u2013 a\u00f0rar ger\u00f0ir m\u00f3ttakara virka ekki   me\u00f0 honum. <\/li>\n<\/ul>\n<p>&THORN;a\u00f0 eru til a\u00f0rir valkostir en PCM \u2013 <a href=\"http:\/\/www.flairproducts.co.uk\/Radio\/Receivers\/Intro.htm\" target=\"_blank\">sko\u00f0a\u00f0u IPD fr\u00e1 Multiplex<\/a>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00f6fundur: Dave Edwards af s\u00ed\u00f0u hans Dave&#8217;s RC Flight : http:\/\/davesrcflight\/mysite.wanadoo-members.co.uk &THORN;\u00fdtt me\u00f0 leyfi h\u00f6fundar: Gu\u00f0j\u00f3n \u00d3lafsson \u00cd \u00feessari grein ver\u00f0a fyrirb\u00e6rin PPM (enska Pulse Position Modulation) og PCM (e. Pulse Code Modulation) \u00fatsk\u00fdr\u00f0, sagt fr\u00e1 hvernig \u00feau virka og &hellip; <a href=\"https:\/\/www.flugmodel.is\/?page_id=15\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":7,"menu_order":6,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/15"}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=15"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/15\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1680,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/15\/revisions\/1680"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/7"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.flugmodel.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=15"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}