13th
January
2016
Aðalfundur 2016
posted in Fréttir |Aðalfundur Flugmódelfélags Akureyrar verður haldinn í kaffistofu Slippsins fimmtudaginn 21. janúar klukkan 20.00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf:
- Skýrsla um starfsemi á síðasta ári.
- Reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Kosning stjórnar og endurskoðanda.
- Kosning í nefndir.
- Tillögur teknar til meðferðar.
- Önnur mál. Engin mál eru enn komin á borð stjórnar, en bera má upp mál á fundinum.
Ef einhverjar tillögur eru til lagabreytinga óskast þær sendar til stjórnarinnar fyrir fundinn.
Stjórnin.